Menningarsamningur Norðurlands vestra

Þann 1. maí árið 2007 var undirritaður menningarsamningur milli samgönguráðuneytis og menntamálaráðuneytis og sveitarfélaga á Norðurlandi vestra. Samningnum er ætlað að efla menningarstarf á Norðurlandi vestra og beina stuðningi ríkis og sveitarfélaga við slíkt starf í einn farveg.  Jafnframt er með samningnum stefnt að því að tryggja sem best frumkvæði og áhrif sveitarfélaganna við forgangsröðun verkefna og auka samstarf þeirra við framkvæmd og stefnumótun menningarmála í landshlutanum. Samningur gildir til ársloka 2009. Í ársbyrjun 2010 var menningarsamningurinn framlengdur út árið 2010.
Þann 15. apríl 2011 var Menningarsamningur Norðurlands vestra framlengdur út árið 2013.

Menningarsamningur Norðurlands vestra 2011

Menningarsamningur Norðurlands vestra 2010

Menningarsamningur Norðurlands vestra 

Menningarstefna sveitarfélaga 2011

Stefnumótun í menningarmálum á Norðurlandi vestra 

Samstarfssamningur sveitarfélaga á Norðurlandi vestra á sviði menningarmála 

Samþykktir Menningarráðs Norðurlands vestra