Fréttir

Verkefnastyrkir til menningarstarfs
13.2.2012 08:57:10 by Ingibergur Guðmundsson

Menningarráð Norðurlands vestra auglýsir eftir umsóknum um verkefnastyrki á grundvelli menningarsamnings mennta- og menningarmálaráðuneytis og iðnaðarráðuneytis við SSNV. Tilgangur styrkjanna er að efla menningarstarf og menningartengda ferðaþjónustu á Norðurlandi vestra.

Sjá nánar hér (pdf skjal)

 

read more...
Söguleg safnahelgi á Norðurlandi vestra
3.10.2011 13:44:00 by Stefán Haraldsson

Söfn og setur á Norðurlandi vestra hafa tekið höndum saman um að bjóða upp á sérstaka safna- og setrahelgi 8. – 9. október nk. í tengslum við verkefnið „Huggulegt haust“.

Það verður opið hús og sérstök dagskrá hjá fjölmörgum söfnum og setrum á Hvammstanga, Laugarbakka, Blönduósi, Skagaströnd og í Skagafirði. Glæsilegir vinningar eru í boði fyrir heppna gesti: Allir sem heimsækja að minnsta kosti 4 söfn lenda í lukkupotti og geta unnið.
Verkefnið er styrkt af Menningaráði Norðurlands vestra. Meiri upplýsingar og dagskrá má finna á vefsíðunni www.huggulegthaust.is.
read more...
Verkefnastjórnun í skapandi greinum - námskeið
22.2.2011 11:25:00 by Ingibergur Guðmundsson

Lumar þú á góðri hugmynd eða verkefni sem þú vilt vinna að?

Námskeið um uppbyggingu verkefna og fyrirtækja í skapandi greinum í smærri samfélögum. Þátttakendur sækja námskeiðið á grundvelli verkefnis sem þeir vilja vinna að og er gert ráð fyrir virkri þátttöku þeirra á námskeiðinu.

Sjá nánar hér

read more...
Sænsk-íslenski samstarfssjóðurinn
24.1.2011 10:38:00 by Ingibergur Guðmundsson

Sænsk-íslenski samstarfssjóðurinn veitir ferðastyrki til að styrkja íslenska þátttakendur í sænsk íslenskum og norrænum verkefnum. Umsóknarfrestur er til 1. feb. nk.

Sjá nánar hér

read more...
Menningarráð Norðurlands vestra úthlutar styrkjum
3.11.2010 08:20:00 by Jón Óskar Pétursson

Seinni úthlutun verkefnastyrkja Menningarráðs Norðurlands vestra, fyrir árið 2010, fór fram í Hótel Varmahlíð fimmtudaginn 28. október. Alls fékk 51 aðili styrk samtals að upphæð 17,5 milljónir. Hæstu styrkirnir námu 1.200 þúsundum en þeir lægstu voru 100 þúsund krónur.
Að þessu sinni voru áberandi styrkir sem tengjast menningartengdri ferðaþjónustu eða rúmur þriðjungur heildarupphæðarinnar. Þar næst komu styrkir til margs konar tónlistarverkefna.

read more...
Verkefnastyrkir til menningarstarfs
18.8.2010 10:46:00 by Ingibergur Guðmundsson

Menningarráð Norðurlands vestra auglýsir eftir umsóknum um verkefnastyrki. Tilgangur styrkjanna er að efla menningarstarf og menningartengda ferðaþjónustu á Norðurlandi vestra.

read more...
Menningarsamningur framlendur
12.5.2010 15:34:00 by Jón Óskar Pétursson

Samstarfssamningur ríkis og SSNV f.h sveitarfélagana á Norðurlandi vestra á sviði menningarmála hefur verið endurnýjaður til ársloka 2010.

read more...
Rúmar 15 milljónir í menningarstyrki
5.5.2010 08:17:00 by Ingibergur Guðmundsson

Fyrri úthlutun menningarstyrkja ársins 2010 fór fram á Gauksmýri 22. apríl. Alls var úthlutað styrkjum til 61 aðila samtals að upphæð 15.250.000 kr. Listi yfir styrkhafa fylgir hér með.

Lesa meira

read more...
RARIk styrkir menningarstarf á Norðurlandi vestra
5.5.2010 08:08:00 by Ingibergur Guðmundsson

Við úthlutun menningarstyrkja, sem fram fór að Gauksmýri 22. apríl, var undirritaður samningur við RARIK um áframhaldandi styrk við menningarstarf á árinu 2010.LinkClick.aspx

read more...

Menningarráð Norðurlands vestra hefur ákveðið tvo umsóknarfresti um verkefnastyrki á árinu 2010, 15. mars og 15. september.

Sjá nánar auglýsingu.

read more...
Áherslur og umsóknarfrestir Norræna menningarsjóðsins árið 2010
6.1.2010 09:47:00 by Katrín María Andrésdóttir

Frá og með 1. janúar 2010 ganga í gildi fimm nýjar áherslur Norræna menningarsjóðsins.  Sjóðurinn leggur áfram metnað í að styrkja norrænt menningarsamstarf í víðum skilningi.

read more...
Blómlegt menningarlíf
22.10.2009 07:02:00 by Ingibergur Guðmundsson

Úthlutun verkefnastyrkja Menningarráðs Norðurlands vestra fór fram miðvikudaginn 21. október á Skagaströnd. Yfirlit yfir styrkhafa má sækja hér.

read more...
Opnað fyrir umsóknir hjá Norrænu menningargáttinni
19.8.2009 17:16:00 by Gudrun Kloes
Næstu umsóknarfrestir renna út samkvæmt eftirfarandi:


read more...
Skýrsla um árangur af starfi Menningarráðs Norðurlands vestra
18.8.2009 08:58:00 by Ingibergur Guðmundsson

Út er komin skýrsla sem Háskólinn á Hólum vann fyrir menningarráðið. Skýrslan fjallar um árangur af starfi menningarráðs árin 2007-2009.

read more...
Menningarlandið 2009
4.5.2009 08:37:00 by Ingibergur Guðmundsson

Menntamálaráðuneyti, iðnaðarráðuneyti og Samband íslenskra sveitarfélaga, í samstarfi við menningarráð landsbyggðarinnar boðar til ráðstefnu á Hótel Stykkishólmi dagana 11. og 12. maí n.k. 
Fjallað verður um reynsluna af menningarsamningunum og spurt hver árangur hafi orðið og hvert beri að stefna.  Hvernig getum við nýtt okkur menningu og menningartengda ferðaþjónustu til nýrrar sóknar í nýsköpun og nýtingu menningararfs okkar? 
Menningarráð landsbyggðarinnar  kynna starfsemi sína og bjóða upp á fjölbreytt sýnishorn skapandi menningar. Fróðleg erindi og spennandi viðburðir.

read more...