22. febrúar 2012
..:: Menningarráð ::..

 

  
  

 Menningarráð


Menningarráð Norðurlands vestra skipa sveitarfélögin á Norðurlandi vestra.  Á starfssvæði Menningarráðsins eru eftirtalin sveitarfélög: Akrahreppur, Blönduósbær, Húnaþing vestra, Húnavatnshreppur, Sveitarfélagið Skagaströnd, Skagabyggð og Sveitarfélagið Skagafjörður.

Menningarráð  er samstarfsvettvangur sveitarfélaga á Norðurlandi vestra fyrir menningarmál og hefur meðal annars það hlutverk að standa fyrir öflugu þróunarstarfi í menningarmálum, úthluta fjármagni til menningarverkefna á Norðurlandi vestra samkvæmt ákvæðum samningsins og hafa eftirlit með framkvæmd hans.

Menningarráð  er skipað fimm fulltrúum og skulu fjórir þeirra kosnir á ársþingi SSNV annað hvert ár samkvæmt samþykktum Menningarráðs Norðurlands vestra. Fimmti fulltrúinn í menningarráði skal skipaður af stjórn SSNV.

Samþykktir Menningarráðs Norðurlands vestra 

Fulltrúar í menningarráði 2010-2012;

Björg Baldursdóttir, sveitarfélaginu Skagafirði, formaður
Guðný Kjartansdóttir, Sveitarfélaginu Skagafirði
Ragnar Smári Helgason,Húnaþingi vestra
Þóra Sverrisdóttir, Húnavatnshreppi, A-Hún.
Bjarni Jónsson, fulltrúi SSNV

Menningarfulltrúi Norðurlands vestra er Ingibergur Guðmundsson. Skrifstofa hans er að Einbúastíg 2 (gamla kaupfélagshúsið) 545 Skagaströnd og símanúmerið er 452-2901. GSM 892-3080. Netfang menning@ssnv.is

  

@ Allur réttur áskilinn
 
  Login