Málefni fatlaðra heyra undir SSNV málefni fatlaðra í samstarfi við öll átta sveitarfélög á Norðurlandi. vestra. Þjónustan er veitt á forsendum þjónustusamnings milli ríkis og sveitarfélaga, það samstarf hefur verið óslitið frá árinu 1999.
Fyrirkomulagið er með þeim hætti að SSNV málefni fatlaðra gerir þjónustusamninga við fjögur þjónustusvæði; Húnaþing vestra, byggðasamlag um félagsþjónustu í Austur Húnavatnssýslu, Sveitarfélagið Skagafjörð sem jafnframt veitir íbúum Akrahrepps þjónustu og Fjallabyggð vegna Siglufjarðar.
Megin markmið þjónustusamningsins og hvati sveitarfélagana í þessu verkefni er að samþætta þjónustu við fatlaða annarri félagslegri þjónustu sem er á höndum sveitarfélaga og samtvinna við aðra þjónustu í heimabyggð s.s. skóla- og heilbrigðisþjónustu. Kappkostað er að veita heildstæða og samþætta þjónustu í heimabyggð eftir þörfum hvers og eins þá bestu í landinu eins og fram kemur í framtíðarsýn SSNV málefna fatlaðra.
Ábyrgð og framkvæmd þjónustu er því hjá félagsþjónustu hvers svæðis og er einn þjónustuþáttur sveitarfélagana.
Stjórn SSNV er ábyrðaraðili þjónustusamning gagnvart ríkinu og er verkefnisstjóri starfandi sem sér um samstarf og samvinnu milli sveitarfélag og ríkis ásamt því að hald utanum þjónustusamninginn og framkvæmd hans. Samhliða því er starfandi þjónustuhópur sem er faglegur ráðgjafahópur um málefni fatlaðra og starfar eftir erindisbréfi frá stjórn. Í þjónustuhópnum eiga sæti félagsmálastjórar á Norðurlandi vestra, framkvæmdastjóri og verkefnisstjóri SSNV. Formaður svæðisráðs um málefni fatlaðra á Norðurlandi vestra á rétt til setu á fundum þjónustuhópsins með tillögurétt og málfrelsi. Er þannig uppfyllt upplýsingaskylda til svæðisráðsins. Hlutverk þjónustuhópsins er að vera stjórn til ráðgjafar og upplýsinga hvað varðar málefni fatlaðra ásamt því að gera tillögur um uppbyggingu og þróun þjónustunnar á starfssvæði SSNV málefni fatlaðra.