30. júlí 2010
..:: Heim ::..

 

 

 Tilkynningar

 18. ársþing SSNV verður haldið í Félagsheimilinu á Blönduósi dagana 27.-28. ágúst 2010. Nánari upplýsingar um þingið verða birtar á hér á heimasíðunni þegar nær dregur.

 18. ársþing SSNV verður haldið í Félagsheimilinu á Blönduósi dagana 27.-28. ágúst 2010. Nánari upplýsingar um þingið verða birtar á hér á heimasíðunni þegar nær dregur.

  




 

 

 

 

 




 

 

 

 

 

 Ýmislegt
  

 Fréttir
feb.2 2.2.2010 11:03:00 - Katrín María Andrésdóttir

Auglýst hefur verið eftir umsóknum um styrki frá NATA (North Atlantic Tourist Association).  Um er að ræða samning Íslands, Færeyja og Grænlands um samstarf landanna þriggja í ferðamálum.

Allir sem áhuga hafa á bættum samskiptum á sviði ferðamála milli landanna þriggja geta leitað eftir aðstoð við að fjármagna verkefni, hugmyndir, ferðir eða því um líkt.  Umsóknir skulu fela í sér samstarf milli tveggja af löndunum þremur, hið minnsta.

Sækja má um aðstoð á eftirfarandi sviðum:

Þróun ferða:  Siglingar, þemaferðir, stuttar heimsóknir (shortbreak) ofl.

Markaðssetning í ferðaþjónustu og greining sóknarfæra:  Alþjóðleg átaksverkefni á sviði ferðaþjónustu.

Menntun:  Faglegar námsferðir, menntun á sviði ferðamála, dvöl til að kynna sér aðstæður.

Allar umsóknir skulu vera á þar til gerðum eyðublöðum. Sem fylgiskjöl með umsókninni skal leggja fram nákvæma útlistun á verkefni, svo og fjárhagsáætlun.  Umsóknir skulu vera á dönsku eða ensku og sendast til:

NATA c/o, Ferðamálastofa, Geirsgata 9, 101 Reykjavík.

Lokafrestur til að senda umsóknir er til 15. febrúar 2010.

Umsóknareyðublað má nálgast á vef Ferðamálastofu, www.ferdamalastofa.is

Fyrirspurnir varðandi vinnslu umsóknar má beina á netfangið sigrun@icetourist.is

 

 

jan.27 27.1.2010 14:03:00 - Katrín María Andrésdóttir

Framleiðnisjóður landbúnaðarins auglýsir styrki til rannsókna- og þróunarverkefna á árinu 2010.

Forgangs njóta verkefni sem eru til þess fallin að auka framleiðni og arðsemi í landbúnaði.  Umsóknum skal skilað fyrir 28. febrúar n.k. til skrifstofu Framleiðnisjóðs landbúnaðarins, Hvanneyrargötu 3, 311 Borgarnes, á umsóknareyðublöðum sem þar fást.  Nánari upplýsingar og umsóknareyðublöð má finna á vefsíðu sjóðsins:  www.fl.is

Stefnt er að því að ljúka afgreiðslu umsókna í apríl n.k.

Nánari upplýsingar veittar á skrifstofu Framleiðnisjóðs landbúnaðarins, Hvanneyri, 311 Borgarnesi.  Sími 430 4300, netfang: fl@fl.is

 

jan.25 25.1.2010 13:59:00 - Jón Óskar Pétursson

Samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra, Samband íslenskara sveitarfélaga og Samtök sveitarfélaga á Norðurlandi vestra (SSNV) boða til sameiginlegs kynningarfundar um nýjar leiðir til að efla sveitarstjórnarstigið, á Hótel Blönduósi miðvikudaginn 27. janúar 2010 og hefst kl 16:30.

meira...
jan.25 25.1.2010 11:39:00 - Katrín María Andrésdóttir

Menningarráð Eyþings, Rarik og Ferðamálastofa standa fyrir námssmiðju um opnar vinnustofur í Kiðagili í Bárðardal, föstudaginn 29. janúar kl. 14:00.

 

meira...
jan.25 25.1.2010 08:44:00 - Katrín María Andrésdóttir

Stjórn Ferðamálasamtaka Íslands boðar ferðaþjónustuaðila á Norðurlandi vestra til fundar á Hótel Varmahlíð mánudaginn 1. febrúar n.k. kl. 19-21.

 

meira...
 
 Print   

 Nýjar fundargerðir
  

 

 http://www.island.is/endurreisn

 

 

 http://www.island.is/endurreisn

 

@ Allur réttur áskilinn
 
  Innskráning