|
Auglýst er eftir umsóknum um styrki úr Umhverfis- og orkurannsóknasjóði OR, sem hefur 50 milljónir til ráðstöfunar á árinu 2010.
Hlutverk sjóðsins er að efla rannsóknir, þróun og nýsköpun á sviði umhverfis- og orkumála, þar með taldar þverfaglegar rannsóknir.
Markmiðið er að veita styrki til háskóla og nýsköpunarrannsókna á sviði umhverfis- og orkumála og treysta samstarf Orkuveitunnar við sérfræðinga og vísindamenn sem stunda rannsóknir á sviðinu.
Sjóðurinn veitir styrki til verkefna í umhverfis- og orkurannsóknum sem varða:
Hagnýtar framfarir í kjarnastarsemi OR, uppbyggingu og rekstri vatnsveitu, hitaveitu, rafveitu, fráveitu eða gagnaveitu.
Tengsl starfsemi OR við umhverfi, samfélag og efnahag.
Augna hagnýtingu endurnýjanlegara orkugjafa.
Umsóknum skal skilað í síðasta lagi 1. mars 2010.
Allar nánari upplýsingar um sjóðinn, úthlutunarreglur og tilhögun umsókna má finna á vef sjóðsins: http://www.or.is/UmOR/UOOR/
|