10. september 2010
..:: Heim ::..

 

 Tilkynningar

 

  




 

 

 

 

 

 Ýmislegt
  

 Fréttir
ágú.24 24.8.2009 15:32:00 - Katrín María Andrésdóttir

SSNV Atvinnuþróun hefur borist kynning á nýrri þjónustu sem ætlunin er að koma á fót nú í haust.

Um er að ræða vefsvæði sem hlotið hefur nafnið Uppspretta.  Markmið með þjónustunni er að leiða saman fólk, hugmyndir og lánsfé.  Á vefnum verður hægt að óska eftir láni eða lána öðrum. 

meira...
ágú.24 24.8.2009 15:10:00 - Katrín María Andrésdóttir

Fræðslusetrið Starfsmennt kynnir
Þjónustustjórnun-Fjarkennt

Á þessu stutta námskeiði gefst þátttakendum kostur á að horfa á nokkur myndbönd þar sem fjallað er um góða og slæma þjónustu á skemmtilegan og lýsandi hátt. Námið er síðan metið með heimaverkefnum.

Þetta námskeið er einstaklega hentugt fyrir starfsmenn sem hafa lítinn tíma aflögu en vilja bæta þekkingu sína og auka starfshæfni. Ekki er þörf á að fara af starfsstað til að sækja námskeiðið því eingöngu er þörf á tölvu og nettengingu.

Umsjón með námskeiðinu hefur Margrét Reynisdóttir og fær hún til liðs við sig marga góða leikara s.s. Örn Árnason sem fer á kostum.

Námskeiðið stendur yfir í einn mánuð og hefst
2. nóv. og lýkur 1. des.

meira...
ágú.24 24.8.2009 14:39:00 - Gudrun Kloes
Samkeppnishæfni og sjálfbærni ferðaþjónustu í Evrópu
Umsóknarfrestur í "Networks for the Competitiveness and sustainability of European tourism", hefur verið lengdur til 15.september. Ætlunin er að verkefnið fari af stað í janúarbyrjun 2010 og sé til 18 mánaða. Markmiðið með þessu verkefni er að:
• Auka samkeppnishæfni lítilla og meðalstórra fyrirtækja innan ferðaiðnaðarins.
• Styðja við samstarfsnet, svæðisbundið og á milli svæða
• Miðla þekkingu til fyrirtækja um góða viðskiptahætti sem og að stuðla að aukinni nýsköpun innan þessa geira
meira...
ágú.20 20.8.2009 11:38:00 - Gudrun Kloes
Vestnorden 2009 verður haldin Kaupmannahöfn 16.-17. september í umsjón Grænlendinga.

Vestnorden er árleg ferðakaupstefna sem Ferðamálastofa og Ferðamálaráð Grænlands og Ferðamálaráð Færeyja hafa staðið að í rúma tvo áratugi. Kaupstefnurnar eru haldnar til skiptis í löndunum þremur.
meira...
ágú.20 20.8.2009 09:44:00 - Ingibergur Guðmundsson

Menningarráð Norðurlands vestra auglýsir eftir umsóknum um verkefnastyrki á menningarsviðinu, síðari úthlutun ársins 2009.

meira...
 
 Print   

 Nýjar fundargerðir
  

 

 

 http://www.island.is/endurreisn

 

@ Allur réttur áskilinn
 
  Innskráning