30. júlí 2010
..:: Heim ::..

 

 

 Tilkynningar

 18. ársþing SSNV verður haldið í Félagsheimilinu á Blönduósi dagana 27.-28. ágúst 2010. Nánari upplýsingar um þingið verða birtar á hér á heimasíðunni þegar nær dregur.

 18. ársþing SSNV verður haldið í Félagsheimilinu á Blönduósi dagana 27.-28. ágúst 2010. Nánari upplýsingar um þingið verða birtar á hér á heimasíðunni þegar nær dregur.

  




 

 

 

 

 




 

 

 

 

 

 Ýmislegt
  

 Fréttir
jún.10 10.6.2010 13:01:00 - Gudrun Kloes

Starfsmenntaráð auglýsir  eftir umsóknum um styrki vegna starfsmenntunar í atvinnulífinu, sbr. lög nr. 19/1992 um starfsmenntun í atvinnulífinu. Til úthlutunar eru 55 milljónir króna.  Eingöngu er tekið við umsóknum á rafrænu formi.
Umsóknir falli í annan hvorn flokkinn:
Flokkur A
Fræðsluverkefni sem stuðla að atvinnusköpun og fela í sér nýsköpun og þróun. Kostur er að um samstarf ólíkra aðila sé að ræða, t.d. frumkvöðla, framleiðenda og seljenda. Umsækjendur geta verið samstarfsklasar, félög og fyrirtæki og aðrir sem stunda sprotastarf.
Flokkur B
Þróunarverkefni  á sviði fræðslu, ráðgjafar eða þjálfunar sem miða að því að vinna gegn neikvæðum áhrifum breytinga í kjölfar efnahagskreppu s.s. vegna breytinga á störfum, stöðu einstaklinga á vinnumarkaði og á starfsemi fyrirtækja og stofnana. Niðurstöður verkefna verða að hafa almenna skírskotun og geta yfirfærst á önnur svið.

Gerð er krafa um samstarf við samtök atvinnurekenda og launafólks við gerð og framkvæmd viðkomandi verkefnis. Áhersla er lögð á að verkefni sem sótt er um styrk til séu vel undirbúin og umsóknir vandaðar.

Umsóknarfrestur er til 15. ágúst 2010.


Nánari upplýsingar eru á heimasíðu Starfsmenntaráðs
www.starfsmenntarad.is

maí21 21.5.2010 14:11:00 - Jón Óskar Pétursson

Skýrsla um Hagvöxt landshluta birtist nú fjórða sinn og að þessu sinni er fjallað um árin 2003-2008. Skýrslan er unnin af Dr. Sigurði Jóhannessyni hjá Hagfræðistofnun Háskóla Íslands fyrir Byggðastofnun og í samvinnu við starfsmenn stofnunarinnar. Í skýrslunni eru tölur fyrir árið 2007 reiknaðar eins og áður en tölur fyrir árið 2008 áætlaðar

meira...
maí18 18.5.2010 10:50:00 - Jón Óskar Pétursson

Lögð hefur verið fram á alþingi tillaga til þingsályktunar um fjögurra ára samgönguáætlun 2009-2012. Samgönguáætlun inniber áætlun til fjögurra ára í flugmálum, siglingamálum og vegamálum. Þá inniber áætlunin fimm meginmarkmið, en þau eru; greiðari samgöngur, hagkvæmni í uppbyggingu ,umhverfisleg sjálfbærni, öryggi og jákvæð byggðaþróun.

 

meira...
maí12 12.5.2010 15:34:00 - Jón Óskar Pétursson

Samstarfssamningur ríkis og SSNV f.h sveitarfélagana á Norðurlandi vestra á sviði menningarmála hefur verið endurnýjaður til ársloka 2010.

meira...
maí5 5.5.2010 08:17:00 - Ingibergur Guðmundsson

Fyrri úthlutun menningarstyrkja ársins 2010 fór fram á Gauksmýri 22. apríl. Alls var úthlutað styrkjum til 61 aðila samtals að upphæð 15.250.000 kr. Listi yfir styrkhafa fylgir hér með.

Lesa meira

 
 Print   

 Nýjar fundargerðir
  

 

 http://www.island.is/endurreisn

 

 

 http://www.island.is/endurreisn

 

@ Allur réttur áskilinn
 
  Innskráning