30. júlí 2010
..:: Heim ::..

 

 

 Tilkynningar

 18. ársþing SSNV verður haldið í Félagsheimilinu á Blönduósi dagana 27.-28. ágúst 2010. Nánari upplýsingar um þingið verða birtar á hér á heimasíðunni þegar nær dregur.

 18. ársþing SSNV verður haldið í Félagsheimilinu á Blönduósi dagana 27.-28. ágúst 2010. Nánari upplýsingar um þingið verða birtar á hér á heimasíðunni þegar nær dregur.

  




 

 

 

 

 




 

 

 

 

 

 Ýmislegt
  

 Fréttir
okt.26 26.10.2009 02:43:00 - Jón Óskar Pétursson

Á næstu mánuðum verða mótaðar sóknaráætlanir í öllum landshlutum samkvæmt nýrri skiptingu landsins í sjö svæði sem samþykkt hefur verið í ríkisstjórn. Heimamenn á hverju svæði um sig og fjöldi hagsmunaaðila, stofnana og ráðueyta munu koma að verkinu undir forystu landshlutasamtaka og stýrihóps Sóknaráætlunar sem starfar á vegum forsætisráðuneytisins m.a. með þátttöku fimm ráðherra ríkisstjórnarinnar

meira...
okt.22 22.10.2009 07:02:00 - Ingibergur Guðmundsson

Úthlutun verkefnastyrkja Menningarráðs Norðurlands vestra fór fram miðvikudaginn 21. október á Skagaströnd. Yfirlit yfir styrkhafa má sækja hér.

okt.20 20.10.2009 09:03:00 - Jón Óskar Pétursson

SSNV bauð áhugafólki um atvinnulíf á Norðurlandi vestra til Dags atvinnulífsins í Félagsheimilnu á Blönduósi fimmtudaginn 15. október síðastliðinn. Degi atvinnulífsins er ætlað að efla tengsl milli aðila í atvinnurekstri og einnig að vekja athygli á því sem vel er gert á Norðurlandi vestra.

meira...
okt.15 15.10.2009 10:01:00 - Jón Óskar Pétursson

Stjórn Samtaka sveitarfélaga á Norðurlandi vestra (SSNV) veitir árlega hvatningarverðlaun til fyrirtækis á starfssvæði samtakanna. Hvatningarverðlaun SSNV – atvinnuþróunar hafa verið veitt frá árinu 1999 og eru þau í senn hvatning til áframhaldandi starfsemi og viðurkenning fyrir góðan árangur. Markmið verðlaunanna er að hvetja til nýsköpunar og þróunar og vekja athygli á því sem vel er gert á Norðurlandi vestra.

 
meira...
okt.13 13.10.2009 04:11:00 - Katrín María Andrésdóttir

Ferðamálastofa hefur auglýst eftir tilnefningum til Umhverfisverðlauna fyrir árið 2009. Verðlaunin hefur stofnunin veitt árlega frá árinu 1995 og er tilgangur þeirra að beina athyglinni að þeim ferðamannastöðum eða fyrirtækjum í ferðaþjónustu sem sinna umhverfismálum í starfi sínu og framtíðarskipulagi.

Ferðaþjónustan byggir afkomu sína að miklu leyti á umhverfislegum gæðum og er það trú Ferðamálastofu að verðlaunin geti orðið hvatning til ferðaþjónustuaðila og viðskiptavina þeirra að huga betur að umhverfi og náttúru og styrkja þannig framtíð greinarinnar.

Hverjir koma til greina sem verðlaunahafar:
Allir þeir sem tengjast ferðamálum og láta sig umhverfismál varða og vinna markvisst að því að viðhalda jafnvægi milli efnahagslegra, náttúrlegra og félagslegra þátta. Það geta verið einstaklingar, fyrirtæki, félagasamtök eða sveitafélög.

Hér með er óskað eftir tilnefningum til umhverfisverðlauna Ferðamálastofu 2009. Frekari upplýsingar veitir umhverfisfulltrúi stofnunarinnar, Sveinn Rúnar Traustason, í síma 535 5510.

Tilnefningar sendist til skrifstofu Ferðamálastofu, Strandgötu 29, 600
Akureyri eða með tölvupósti á netfangið sveinn@icetourist.is fyrir 30.
október næstkomandi.

meira...
 
 Print   

 Nýjar fundargerðir
  

 

 http://www.island.is/endurreisn

 

 

 http://www.island.is/endurreisn

 

@ Allur réttur áskilinn
 
  Innskráning