30. júlí 2010
..:: Heim ::..

 

 

 Tilkynningar

 18. ársþing SSNV verður haldið í Félagsheimilinu á Blönduósi dagana 27.-28. ágúst 2010. Nánari upplýsingar um þingið verða birtar á hér á heimasíðunni þegar nær dregur.

 18. ársþing SSNV verður haldið í Félagsheimilinu á Blönduósi dagana 27.-28. ágúst 2010. Nánari upplýsingar um þingið verða birtar á hér á heimasíðunni þegar nær dregur.

  




 

 

 

 

 




 

 

 

 

 

 Ýmislegt
  

 Fréttir
des.11 11.12.2009 00:38:00 - Katrín María Andrésdóttir

Kraumur tónlistarsjóður auglýsir eftir umsóknum fyrir verkefni á sviði íslenskrar tónlistar sem ráðgert er að eigi sér stað á næsta ári.

Tónlistarmenn og hljómsveitir úr öllum geirum tónlistar eru hvattir til að sækja um fyrir sín verkefni. Umsóknarferlið er einnig opið fyrir verkefnastjóra og viðburði.  Opnað verður fyrir umsóknarferlið á degi Íslenskrar tónlsitar, föstudaginn 11. desember og því lýkur 20. janúar á næsta ári.

meira...
des.10 10.12.2009 06:47:00 - Katrín María Andrésdóttir

Um þessar mundir eru styrkþegar ársins 2008 að skila inn skýrslum vegna uppgjöra styrkja til atvinnumála kvenna en styrkirnir eru veittir af Félags- og tryggingamálaráðherra ár hvert.  Óhætt er að segja að flest verkefnin er styrk fengu hafi gengið vel og mörg verkefni  vel á veg komin.  Alls var 50 milljónum úthlutað árið 2008 og skiptust styrkir nánast jafnt milli höfuðborgarsvæðisins og landsbyggðarinnar.   

Nú hefur Félags- og tryggingamálaráðherra ákveðið að flýta styrkveitingum ársins 2010 og auglýsa styrki lausa til umsókna upp úr áramótum og úthluta í mars en til umráða að þessu sinni eru 30. milljónir.  

Hægt er að sækja um styrki til gerðar viðskiptaáætlunar (300.000), til vöruþróunar, markaðssetningar, efniskostnaðar og hönnunar svo eitthvað sé nefnt.
Ennfremur geta þær konur sem skila inn fullbúnum viðskiptaáætlunum og eru að hefja rekstur sótt um launastyrk í allt að sex mánuði.

Nýmæli í styrkveitingununum að þessu sinni er að hluta af fjármagninu,  sem til ráðstöfunar er,   verður eyrnamerkt atvinnulausum konum sem eru með góðar viðskiptahugmyndir. Skilyrði er að þær hafi sótt um styrk hjá Vinnumálastofnun til að þróa eigin viðskiptahugmynd en það úrræði er eitt af vinnumarkaðsúrræðum stofnunarinnar.  Fyrirhugað er að kynna þetta á sérstökum fundum sem verða haldnir hjá Vinnumálastofnunum eftir áramót og verða auglýstir nánar þegar þar að kemur.

Eins og áður segir verður opnað fyrir umsóknir í janúar en sótt er um á vefsvæðinu www.atvinnumalkvenna.is á rafrænum umsóknareyðublöðum sem þar er að finna.

Allar nánari upplýsingar og leiðbeiningar má ennfremur finna á vefsvæði verkefnisins og meðal annars má þar finna leiðbeiningar um útfyllingu eyðublaðs og geta því konur þegar hafið undirbúning að umsókn sinni.

Nánari upplýsingar veitir starfsmaður verkefnisins, Ásdís Guðmundsdóttir, í síma 582-4914 eða í netfanginu asdis.gudmundsdottir@vmst.is

 

des.4 4.12.2009 02:43:00 - Gudrun Kloes

Hýruspor samtök um hestatengda þjónustu á Norðurlandi vestra sem stofnuð voru í janúar sl. hafa nú opnað heimasíðu www.icehorse.is . Þar er m.a. að finna flokka yfir þá þjónustu sem meðlimirnir Hýruspors bjóða upp á .

meira...
des.4 4.12.2009 02:34:00 - Gudrun Kloes

Ferðamálastofa auglýsir styrki til úrbóta í umhverfismálum fyrir árið 2010. Sérstök áhersla verður lögð á verkefni tengd sjálfbærri ferðaþjónustu fyrir alla sem hafa heildrænt skipulag og langtímamarkmið að leiðarljósi.

meira...
des.1 1.12.2009 07:31:00 - Katrín María Andrésdóttir

Um þessar mundir er unnið að uppfærslu póst- og netfangalista handverksfólks á Norðurlandi vestra hjá SSNV.

Listinn er settur saman og uppfærður til þess að hægt sé með aðgengilegum hætti að koma skilaboðum og erindum til handverksfólks, t.d. varðandi námskeið og markaði.

Þeir sem vilja vera á listanum og fá sendar tilkynningar og upplýsingar sem erindi eiga til handverksfólks eru hvattir til að hafa samband svo tryggt sé að þeir séu á listanum.

meira...
 
 Print   

 Nýjar fundargerðir
  

 

 http://www.island.is/endurreisn

 

 

 http://www.island.is/endurreisn

 

@ Allur réttur áskilinn
 
  Innskráning