30. júlí 2010
..:: Heim ::..

 

 

 Tilkynningar

 18. ársþing SSNV verður haldið í Félagsheimilinu á Blönduósi dagana 27.-28. ágúst 2010. Nánari upplýsingar um þingið verða birtar á hér á heimasíðunni þegar nær dregur.

 18. ársþing SSNV verður haldið í Félagsheimilinu á Blönduósi dagana 27.-28. ágúst 2010. Nánari upplýsingar um þingið verða birtar á hér á heimasíðunni þegar nær dregur.

  




 

 

 

 

 




 

 

 

 

 

 Ýmislegt
  

 Fréttir
des.17 17.12.2009 13:41:00 - Katrín María Andrésdóttir

Fram er komin áhugaverð samantekt um möguleika fiskmarkaðar fyrir almenning, þar sem gestir og gangandi geta kynnst óþrjótandi möguleikum íslensks sjávarfangs og komist í tæri við afurðirnar og keypt sér spennandi hráefni til matargerðar.

AVS verkefninu „Fiskmarkaður fyrir almenning“ er nú lokið. Verkefnið snérist um að kanna grundvöll fyrir því að koma á fót fiskmörkuðum á Íslandi fyrir almenning og ferðamenn. Þá voru unnar tillögur að því hvernig mætti standa að slíkum markaði. Megintilgangurinn var að hvetja til stofnunar (smásölu-) fiskmarkaða víðsvegar um landið og þar með styrkja tengingu neytenda við sjávarafurðir. Mikill áhugi hefur verið á verkefninu og stefnir allt í að fljótlega verði slíkur markaður stofnaður í Reykavík.

Skýrslur um verkefnið og nánari upplýsingar má nálgast á eftirfarandi slóð:

http://www.matis.is/um-matis/frettir/2009/11/09/nr/2580

 

des.17 17.12.2009 06:24:00 - Katrín María Andrésdóttir

Byggðastofnun í samstarfi við Handverk og hönnun, Hönnunarmiðstöð, Listaháskóla Íslands, Nýsköpunarmiðstöð Íslands, Ímark og Útflutningsráð Íslands auglýsir eftir umsóknum um stuðning við markaðssetningu erlendis á íslensku handverki og hönnunarvörum.

Auglýsinguna má sjá hér:

http://www.byggdastofnun.is/news/enginn_titill11113/

 

des.17 17.12.2009 01:37:00 - Jón Óskar Pétursson
Félags- og tryggingamálaráðuneytið hefur auglýst eftir umsóknum frá sveitarfélögum á grundvelli samnings sem nýlega var undirritaður milli félags- og tryggingamálaráðuneytisins, mennta- og menningarmálaráðuneytisins, heilbrigðisráðuneytisins og Sambands íslenskra sveitarfélaga.

Samningurinn hefur það að markmiði að koma upp og efla stuðnings- og nærþjónustu við langveik börn og börn með ADHD greiningu og fjölskyldur þeirra. Sveitarfélög annast skipulagningu og framkvæmd verkefna samkvæmt samningnum og geta sótt um styrk vegna þeirra, hvort sem verkefni eru unnin á eigin vegum eða sem unnin eru í samstarfi við einstaklinga eða félagasamtök.
meira...
des.15 15.12.2009 03:15:00 - Katrín María Andrésdóttir

Út er komið veffréttabréf Starfsmenntar fyrir desmber 2009.  Það má finna á slóðinni:

http://smennt.is/frettabref/veffrettabref_desember_2009/

Ástæða er til að hvetja íbúa á Norðurlandi vestra til að kynna sér þá möguleika sem í boði eru hjá Starfsmennt en þar er meðal annars boðið upp á ýmsa starfstengda fjarnámsmöguleika.

des.15 15.12.2009 03:10:00 - Katrín María Andrésdóttir

Nú hefur verið auglýstur fimmti umsóknarfrestur Norðurslóðaáætlunar með lokadagsetningu 24. mars 2009. Að þessu sinni er lögð sérstök áhersla á verkefni er falla að markmiðum um Nýsköpun og samkeppnishæfni og Sjálfbæra nýtingu náttúruauðlinda og samfélags.

Í ljósi þeirra efnahagslegu þrenginga sem  þátttökuönd áætlunarinnar standa nú frammi fyrir er lögð sérstök áhersla á verkefni sem eru líkleg til að skapa ný störf  til að takast á við vaxandi atvinnuleysi og þróa skapandi lausnir.  Ákveðin tækifæri til sóknar felast í kreppunni og lögð er áhersla á að þau séu nýtt. Með aukinni samvinnu hinna ýmsu greina má ná árangri og mætti nefna samstarf skapandi greina við hefðbundið atvinnulíf í því sambandi.

Þrátt fyrir ofangreindar megináherslur um verkefni þá hafa verið greind eftirfarandi verkefnasvið sem enn vantar verkefni.

 

  1. Þekkingaryfirfærsla og samstarfsnet  rannsóknastofnana og fyrirtækja með að markmiði að auka getu til nýsköpunar, ná fram skilvirkara nýsköpunarferli og bætta samkeppnishæfni.
  2. Samstarfsverkefni þéttbýlis og dreifbýlis um þróun þjónustu.

Þessu til viðbótar  má nefna verkefni um samstarf fyrirtækja á sviði markaðssetningar, hagnýtingu tölvutækni til samskipta,  nýjar þjónustur á sviði samgangna og menningarmála. 

Opnað verður fyrir umsóknir í 6. umsóknarfrest 3. september 2010  og verða áherslur hans kynntar í júlí 2010.

Að öðru leyti vísast til upplýsinga á vef Norðurslóðaáætlunar  og Byggðastofnunar

Nálgast má auglýsingu um fimmta umsóknarfrest hér.

 
 Print   

 Nýjar fundargerðir
  

 

 http://www.island.is/endurreisn

 

 

 http://www.island.is/endurreisn

 

@ Allur réttur áskilinn
 
  Innskráning