Síðasta vetrardag var rannsóknadeild Selaseturs Íslands á Hvammstanga opnuð með pompi og prakt.
Við þetta tækifæri voru undirritaðir samstarfssamningar setursins við Veiðimálastofnun og Hólaskóla, en starfsmenn frá báðum stofnunum hafa nú aðsetur í setrinu. Starfsmaður Veiðimálastofnunar er Sandra Magdalena Granquist og mun hún stunda selarannsóknir en starfsmaður Hólaskóla er Per Åke Nilsson sem auk kennslu við skólann mun sinna rannsóknum á sviði náttúrutengdrar ferðaþjónustu.
Mynd: Sigurður Guðjónsson forstjóri Veiðimálastofnunar, Hrafnhildur Ýr Víglundsdóttir framkvæmdastjóri Selaseturs Íslands og Skúli Skúlason rektor Hólaskóla við undirritun samninga.
meira...