22. febrúar 2012
..:: Heim ::..

 

 Tilkynningar

 

  

 

 

 

 

 

 

 

 Ýmislegt
  

 Fréttir
okt.17
Vegvísir á vefnum fyrir fyrirtæki og einstaklingar
17.10.2011 11:31:00 : Gudrun Kloes

 

Nýr sameiginlegur upplýsingavefur hefur verið opnaður á vegum Ferðamálastofu, Orkustofnunar, Iðnaðarráðuneytis, Byggðastofnunar og Nýsköpunarmiðstöðvar Íslands.

www.atvinnuvegurinn.is

Atvinnuvegurinn.is er hugsaður sem leiðarvísir um þjónustuframboð ofangreindra aðila og gerir einstaklingum og stjórnendum fyrirtækja kleift að leita eftir upplýsingum  á einfaldan hátt.

 

meira...
okt.13

Að undanförnu hefur staðið yfir  kynningarátak á Norðurlandi vestra undir nafninu „Huggulegt haust“.  Markmiðið með verkefninu er að lengja hefðbundið ferðamannatímabil og draga fram þá fjölmörgu kosti sem ferðafólk getur nýtt sér á svæðinu, utan háannatíma.

meira...
okt.3
Söguleg safnahelgi á Norðurlandi vestra
3.10.2011 13:44:00 : Stefán Haraldsson

Söfn og setur á Norðurlandi vestra hafa tekið höndum saman um að bjóða upp á sérstaka safna- og setrahelgi 8. – 9. október nk. í tengslum við verkefnið „Huggulegt haust“.

Það verður opið hús og sérstök dagskrá hjá fjölmörgum söfnum og setrum á Hvammstanga, Laugarbakka, Blönduósi, Skagaströnd og í Skagafirði. Glæsilegir vinningar eru í boði fyrir heppna gesti: Allir sem heimsækja að minnsta kosti 4 söfn lenda í lukkupotti og geta unnið.
Verkefnið er styrkt af Menningaráði Norðurlands vestra. Meiri upplýsingar og dagskrá má finna á vefsíðunni www.huggulegthaust.is.
meira...
sep.21
Efling verslunar í dreyfbýli
21.9.2011 15:57:00 : Jón Óskar Pétursson

Boðað er til fjölþjóðlegrar ráðstefnu þar sem fjallað verður um úrræði til að efla litlar verslanir á landsbyggðinni.  Ráðstefnan verður haldin á Húsavík 8. nóvember næstkomandi í fundarsal Framsýnar, Garðarsbraut 26.  Á ráðstefnunni verða kynntar niðurstöður þriggja ára samstarfsverkefnis um málefni dreifbýlisverslana sjö þjóða á norðurslóðum (Íslands, Finnlands, Noregs, Færeyja, Norður-Írlands, Írlands og Skotlands).


 

meira...
sep.19
Breytt fyrirkomulag úthlutana á safnliðum í fjárlögum
19.9.2011 14:39:00 : Jón Óskar Pétursson

Á árinu 2012 verða gerðar breytingar á úthlutun styrkja til félaga, samtaka og einstaklinga á þann veg að Alþingi hættir úthlutunum á styrkjum til ýmissa verkefna til félaga, samtaka og einstaklinga eins og verið hefur. Alþingi mun áfram ákvarða umfang styrkja til einstakra málaflokka en úthlutun þeirra mun flytjast til ráðuneyta, lögbundinna sjóða, menningarráða landshluta eða annarra sem sjá um og bera ábyrgð á viðkomandi málaflokkum.

meira...
  


 

@ Allur réttur áskilinn
 
  Login