Tilkynningar

 

 

 

 

 

 

 

 

Fréttir

des.4

Ferðamálastofa auglýsir styrki til úrbóta í umhverfismálum fyrir árið 2010. Sérstök áhersla verður lögð á verkefni tengd sjálfbærri ferðaþjónustu fyrir alla sem hafa heildrænt skipulag og langtímamarkmið að leiðarljósi.

meira...
des.1
Handverksfólk á Norðurlandi vestra
1.12.2009 07:31:00 : Katrín María Andrésdóttir

Um þessar mundir er unnið að uppfærslu póst- og netfangalista handverksfólks á Norðurlandi vestra hjá SSNV.

Listinn er settur saman og uppfærður til þess að hægt sé með aðgengilegum hætti að koma skilaboðum og erindum til handverksfólks, t.d. varðandi námskeið og markaði.

Þeir sem vilja vera á listanum og fá sendar tilkynningar og upplýsingar sem erindi eiga til handverksfólks eru hvattir til að hafa samband svo tryggt sé að þeir séu á listanum.

meira...
nóv.26
Það þarf þrautseigju og þolinmæði
26.11.2009 04:12:00 : Jón Óskar Pétursson

Það þarf þraustsegju og þolinmæði sagði Ásdís Guðmundsdóttir, starfsmaður Atvinnumála kvenna, á þremur fundum sem stoðkerfið á Norðurlandi vestra stóð fyrir undir yfirskiftinni: Norðurljós - kveikjum á perunni. 

meira...
nóv.25
Byggðaþróun - Ástand og horfur
25.11.2009 02:30:00 : Jón Óskar Pétursson

Við undirbúning þingsályktunartillögu iðnaðarráðherra um stefnumótandi byggðaáætlun 2010-2013 hefur Byggðastofnun tekið saman saman efni um ástand og horfur í byggðaþróun á Íslandi. Þingsályktunartillagan er enn í mótun en fylgiritið Byggðaþróun – Ástand og horfur má nálgast hér.

meira...
nóv.12
Norðurljós - kveikjum á perunni!
12.11.2009 04:00:00 : Katrín María Andrésdóttir

 

Í tilefni Alþjóðlegrar athafnaviku 16. – 22. nóvember n.k. hefur verið ákveðið að bjóða til opinna funda á Norðurlandi vestra. Líkt og norðurljósin varpa birtu á dimmum vetrarkvöldum er ætlunin að lýsa upp skammdegið með öflugri hugmyndavinnu þar sem unnið verður með tækifæri og möguleika á svæðinu.

meira...