|
|
|
|
|
|
|
|
|
|
Ráðherranefnd um ríkisfjármál samþykkti á fundi sínum í síðustu viku að leggja til að 11 verkefni sem þróuð voru í samráðsferli ríkis og sveitarfélaga vegna sóknaráætlana landshluta færu inn á fjárlög 2012. Í heild er um að ræða verkefni fyrir um 220 milljónir á næsta ári. meira...
Stjórn Samtaka sveitarfélaga á Norðurlandi vestra (SSNV) veitir árlega hvatningarverðlaun til fyrirtækis á starfssvæði samtakanna. Hvatningarverðlaun SSNV – atvinnuþróunar hafa verið veitt frá árinu 1999 og eru þau í senn hvatning til áframhaldandi starfsemi og viðurkenning fyrir góðan árangur. Markmið verðlaunanna er að hvetja til nýsköpunar og þróunar og vekja athygli á því sem vel er gert á Norðurlandi vestra.
Að þessu sinni er það verslunin Hlíðarkaup á Sauðárkróki sem hlýtur verðlaunin vegna þess dugnaðar og framsýni sem eigendur hafa sýnt við uppbyggingu fyrirtækisins. meira...
Í þriðja sinn stendur SSNV fyrir árlegum Degi atvinnulífsins á Norðurlandi vestra sem haldinn verður á Kaffi Krók á Sauðárkróki fimmtudaginn 17. nóvember 2011. Að þessu sinni verður Dagur atvinnulífsins haldinn í Alþjóðlegri athafnaviku sem stendur yfir frá 14. – 20. nóvember nk.
Degi atvinnulífsins er ætlað að skapa vettvang til kynningar á starfsemi sem fram fer á svæðinu og umræðu um atvinnumál. Dagskránni lýkur með afhendingu Hvatningarverðlauna SSNV. Að þessu sinni verður sjónum beint að fjölbreyttu atvinnulífi í Skagafirði. meira...
SSNV og Iðnaðarráðuneytið hafa gengið frá hefur verið frá endurnýjun Vaxtarsamnings Norðurlands vestra og er gildistími samningsins árin 2011-2013. Bjarni Jónsson formaður SSNV og Katrín Júlíusdóttir Iðnaðarráðherra undirirrituðu samninginn í Reykjavík þann 1. nóvember 2011. meira...
Níunda úthlutun verkefnastyrkja Menningarráðs Norðurlands vestra fór fram í Selasetrinu á Hvammstanga 20. okt. 2011.
Sjá nánar hér meira...
|
|
|
|
|
|
|
|
|
|
|
|
|
|
|
|
Login
|
|