22. febrúar 2012
..:: Heim ::..

 

 Tilkynningar

 

  

 

 

 

 

 

 

 

 Ýmislegt
  

 Fréttir
feb.20
Þann 10. febrúar s.l stóðu Innanríkisráðuneytið og nefnd um eflingu sveitarstjórnarstigsins í samvinnu við Háskólann á Akureyri fyrir málþingi um leiðir til eflingar sveitarstjórnarstigsins. Meginefni málþingsins var annars vegar skýrsla og tillögur nefndar innanríkisráðherra og Sambands íslenskra sveitarfélaga um eflingu sveitarstjórnarstigsins og hins vegar greindi Grétar Þór Eyþórsson, prófessor við HA, frá niðurstöðum könnunar um viðhorf sveitarstjórnarfulltrúa og alþingismanna til stöðu sveitarstjórnarstigsins, verkefna, íbúalýðræðis og fleiri atriða. meira...
feb.16
Tæpum þremur mánuðum eftir að erindi var sent á forsætisráðherra og þáverandi fjármálaráðherra hafa engin formleg svör borist.  Óskað var eftir fundi til að ræða alvarlega stöðu Norðurlands vestra í ljósi mikillar fólksfækkunar, niðurskurðar og tilflutnings starfa af hálfu ríkisins. Í erindinu var stöðunni lýst og settar fram tillögur um viðbrögð. Ítrekanir á erindinu hafa ekki borið árangur. Það er engu að síður enn einlægur vilji  stjórnar SSNV  að æðstu ráðmenn landsins verði við ósk um fund eins fljótt og verða má svo leggja megi á ráðin um hvernig snúa megi við þessari alvarlegu þróun í landshlutanum. Íbúar á NV trúa því ekki að fólk sem trúað er fyrir landstjórninni af bæði þjóðinni og alþingi velji að snúa baki við heilu landshlutunum. meira...
feb.13
Verkefnastyrkir til menningarstarfs
13.2.2012 08:57:10 : Ingibergur Guðmundsson

Menningarráð Norðurlands vestra auglýsir eftir umsóknum um verkefnastyrki á grundvelli menningarsamnings mennta- og menningarmálaráðuneytis og iðnaðarráðuneytis við SSNV. Tilgangur styrkjanna er að efla menningarstarf og menningartengda ferðaþjónustu á Norðurlandi vestra.

Sjá nánar hér (pdf skjal)

 

meira...
des.2
Ísland allt árið - þróunarsjóður
2.12.2011 14:58:00 : Ingibergur Guðmundsson

Landsbankinn og iðnaðarráðuneytið hafa komið á fót þróunarsjóði til þess að styðja við markaðsátakið Ísland allt árið sem er þriggja ára verkefni ætlað að styðja við lengingu ferðamannatímabilsins á Íslandi.

Umsóknarfrestur er til 10. janúar 2012. Sótt er um í gegnum umsóknarkerfi Nýsköpunarmiðstöðvar Íslands.

Allar nánari upplýsingar er að finna á heimasíðum Landsbankans og Nýsköpunarmiðstöðvar.   www.landsbankinn.is   og www.impra.is

meira...
nóv.29
Umsóknarfrestur framlengdur til 12. des. nk.
29.11.2011 15:50:00 : Ingibergur Guðmundsson

Umsóknarfrestur um styrki sem Alþingi veitti áður hefur verið framlengdur til 12. des. nk. Sjá nánar á heimasíðu Mennta- og menningarmálaráðuneytisins.   www.menntamalaraduneyti.is

meira...
  


 

@ Allur réttur áskilinn
 
  Login