Atvinnuráðgjafar SSNV aðstoða gjarna þá sem hyggjast stofna og reka fyrirtæki við undirbúning og fyrstu skref. Viðtal við ráðgjafa - án endurgjalds eða skuldbindinga af nokkru tagi - getur sparað mikinn tíma og auðveldað leit að frekari upplýsingum.
Fyrir þá sem vilja lesa sér til á netinu þá er á vef Nýsköpunarmiðstöðvar Íslands að finna margvíslegar upplýsingar um stofnun og rekstur fyrirtækja ásamt upplýsingum um margvíslegan stuðning við atvinnulífið.
Undir liðnum „Leyfi og þjónusta“ er að finna hinar margvíslegustu upplýsingar er varða stofnum og rekstur fyrirtækja.
1. Algeng leyfi til atvinnurekstrar. Hér er að finna hinar margvíslegustu upplýsingar um stofnun fyrirtækja svo sem, hvaða leyfi þarf, hvað fyritækjaform og hvað kostar að stofna slíkt, upplýsingar um skattgreiðslur o.fl. Hér þarf að athuga að fletta síðunum sem eru skráðar neðst til vinstri á myndinni til að finna það sem leitað er að.
2. Á síðunum „stofnun fyrirtækja“ og „rekstrarform fyrirtækja“ er að finna upplýsingar um hvernig á að stofna hverskonar fyrirtæki.
3. Undir liðnun „hvar getur þú leytað aðstoðar?“ er svo að finna skrá yfir atvinnuþróunarfélög sem veita aðstoð varðandi fyrirtækjastofnun.
4. Að síðustu er svo gert ráð fyrir tengingu við „þjónustusíður“ sem ætlað er að veita upplýsingar um þjónustu opinberra stofnana.
Á þjónustuvef Ríkisskattstjóra,er svo að finna ýmsar upplýsingar ásamt eyðublöðum og tilkynningum sem skila þarf til skattyfirvalda t.d. varðandi virðisaukaskatt og reiknað endurgjald einstaklinga í atvinnurekstri. Þar er einnig að finna eyðublöð og tilkynningar varðandi hin ýmsu félagaform, bæði í atvinnurekstri og áhugamannafélög.