Umhverfi styrkja og stuðningsúrræða fyrir einstaklinga og fyrirtæki er síbreytilegt og flókið. Atvinnuráðgjafar SSNV leitast við að fylgjast með því eins og kostur er á hverjum tíma til þess að geta veitt aðstoð í sambandi við mótun verkefna og gerð umsókna.
Eftirfarandi eru nokkur vefsetur sem eiga það sameiginlegt að geyma upplýsingar um sjóði og styrkveitendur í ýmsum málaflokkum.
Atvinnuvegurinn.is - orka, iðnaður, ferðaþjónusta og nýsköpun
www.atvinnuvegurinn.is er vefsetur þar sem safnað er saman upplýsingum um þær stofnanir og sjóði sem heyra undir iðnaðarráðuneytið. Þar er meðal annars um að ræða Byggðastofnun, Ferðamálastofu, Nýsköpunarmiðstöð og Orkustofnun. Þar má jafnframt finna upplýsingar um Norræn samvinnuverkefni og fleira.
Menning og fræðslumál
Á vef menntamálaráðuneytisins er mjög umfangsmikið yfirlit yfir þá sjóði og aðila sem veita styrki á sviði menningar- og fræðslumála.
Umhverfi og velferð
Á vefsetrum umhverfisráðuneytisins og velferðarráðuneytisins er að finna upplýsingar um þá styrki sem þau ráðuneyti veita.