Auglýst hefur verið eftir umsóknum um styrki frá NATA (North Atlantic Tourist Association). Um er að ræða samning Íslands, Færeyja og Grænlands um samstarf landanna þriggja í ferðamálum.
Allir sem áhuga hafa á bættum samskiptum á sviði ferðamála milli landanna þriggja geta leitað eftir aðstoð við að fjármagna verkefni, hugmyndir, ferðir eða því um líkt. Umsóknir skulu fela í sér samstarf milli tveggja af löndunum þremur, hið minnsta.
Sækja má um aðstoð á eftirfarandi sviðum:
Þróun ferða: Siglingar, þemaferðir, stuttar heimsóknir (shortbreak) ofl.
Markaðssetning í ferðaþjónustu og greining sóknarfæra: Alþjóðleg átaksverkefni á sviði ferðaþjónustu.
Menntun: Faglegar námsferðir, menntun á sviði ferðamála, dvöl til að kynna sér aðstæður.
Allar umsóknir skulu vera á þar til gerðum eyðublöðum. Sem fylgiskjöl með umsókninni skal leggja fram nákvæma útlistun á verkefni, svo og fjárhagsáætlun. Umsóknir skulu vera á dönsku eða ensku og sendast til:
NATA c/o, Ferðamálastofa, Geirsgata 9, 101 Reykjavík.
Lokafrestur til að senda umsóknir er til 15. febrúar 2010.
Umsóknareyðublað má nálgast á vef Ferðamálastofu, www.ferdamalastofa.is
Fyrirspurnir varðandi vinnslu umsóknar má beina á netfangið sigrun@icetourist.is
read more...